Skólamót í handknattleik
Fyrir grunnskóla
UM SKÓLAMÓTIÐ
Handknattleikssamband Íslands stendur fyrir grunnskólamóti í handknattleik. Leikið er eftir mjúkboltareglum með 4 leikmönnum inn á vellinum í einu.
Grunnskólamótið er fyrir 5. og 6.bekk og er leikið í hvorum árgangi fyrir sig.
Leikið er í karla- og kvennaflokki en þó er leyfilegt að senda til liðs blönduð lið sem spila þá í karlaflokki.
Skólar hvattir til að senda eins mörg lið í hverjum árgangi fyrir sig og þeir hafa burði til.
Í samstarfið við alla grunnskóla á landinu er mótið nú haldið í annað skiptið. Leikið verður svæðisskipt í undankeppni í byrjun október. Í undankeppninni er leikið á Vestfjörðum (Ísafirði), Norðurlandi (Akureyri), Austurlandi(Egilsstöðum) og Suðurlandi(Reykjavík).
Úrslitakeppnin er haldin í Reykjavík sunnudaginn 27.október í íþróttahúsinu Safamýri milli kl 13:00-16:00.